Vatnsá í Heiðardal er 2 stanga veiðisvæði sem er allt að 6 km að lengd. Á svæðinu er eingöngu heimilt að veiða á flugu og eru veiðimenn hvattir til að veiða á agnhaldslausar flugur, þá er óheimilt að nota kaststangir við veiðarnar. Vatnsá er lítil og viðkvæm veiðiá og þar gildir að renna hyljina áður en gengið er að þeim. Heimilt er að drepa 2 laxa hænga á stöng á dag og en þó aðeins laxa undir 68 cm , einnig er heimilt að drepa 6 silunga undir 55 cm stærð. En ávalt að reyna að sleppa bæði sjóbirtings og laxahrygnum. Öllum laxi er sleppt í okt. Ath! Húsagjald er 6000 kr. á dag!
VATNSÁ
Handbók
fyrir veiðihúsið
Almennt
Bannað að reykja í húsinu.
Bannað að fara inn á vöðlum eða í veiðifatnaði.
Rýma skal hús klukkustund eftir að veiðitíma líkur, en herbergi skal rýma að morgni brottfarardags.
Skilja skal við húsið opið í lok dvalar.
Þrífa vask fyrir utan.
Tilkynnið til veiðivarðar ástand á því sem ekki er eðlilegt, einnig látið vita ef eitthvað vantar eða brotnar.
Veiðimenn skulu ganga vel um nánasta umhverfi hússins, muna eftir stubbunum.
Allur akstur utan vega er stranglega bannaður.
Veiðimönnum er heimilt að nýta sína stöng í Heiðarvatni.
Veiðireglur
Aðeins er heimilt að veiða á flugu.
Veiðitími er eftirfarandi
Frá kl 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00
Eftir 1. ágúst er veitt frá 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00
Á skiptidögum er veitt til kl 12:00
Skipting er frjáls en aldrei fleirri en 2 stangir í einu í ánni.
Öll notkun Devon og spúna er bönnuð, aðeins er veitt á flugu.
Skrá skal allan afla, smáann sem stórann og einnig slepptum fiski.
Athuga vel hvort um merktan fisk sé að ræða.
Skylda er að sleppa öllum hrygnum aftur í ánna og öllum 2ja ára hængum.
Forðast skal að taka laxinn upp í mölina.
Þegar fiskur er settur í klakkistu á að láta veiðivörð vita eins fljótt og auðið er.
Bannað er að drepa hrygnur. Fiskurinn skal ekki meðhöndlaður neitt ef hann er kokgleyptur heldur skal klippa án tafar á línuna og sleppa laxinum.
Hvert leyfi skal vera ein stöng og því skulu veiðimenn vera saman á svæðinu, ekki að veiða tveir í einu á hvert leyfi.
Örmerkjaeftirlit er mikið í sumar og mjög brýnt að veiðimenn skoði allan lax áður en hann er settur í frystir (sjá leiðb. um örmerki inni í húsi). Við frystirinn eru pokar undir merkin sem þarf að fylla út. Gera má ráð fyrir að veiðivörður skoði veiðina.
Veiðikvótinn
2 laxar á stöng á dag
Hámark 8 fiskar á stöng á dag, en þar af mega ekki vera fleiri en 2 laxar!
Bannað að drepa 2ja ára laxa (70 cm og stærri) skilda að sleppa öllum silungi 55cm og stærri, ca 5pund.
Heimilt að drepa 6 silunga undir 55cm á stöng.
Öllum laxi sleppt í Október, drepa má 8 geldsilunga undir 55cm.
Brot á ofantöldum veiðireglum getur varðað brottrekstri eða viðvarandi banni við endurkomu í ánna!
Vænlegast til árangurs.
Læðist að hyljunum og byrja að kasta löngu áður en komið er að ánni.
Reynið litlar tvíkrækjuflugur og stækkið eftir veðri og vindum.
Forðist að taka hrygnurnar upp á land til að skemma ekki hreistur.
Grill
Slökkva strax á grillinu eftir notkun og skrúfa fyrir gasið.
Þrýfa grillið eftir hverja notkun.
Aðgerðarvaskur
Henda öllum úrgangi í poka áður en hann er settur í ruslið.
Þrífa borðið eftir hverja notkun.
Ganga snyrtilega frá öllum afla, áður en hann er settur í frystikistuna.
Brottför
Herbergi skulu rýmd að morgni brottfaradags.
Hús skal rýmt eigi síðar en 13:00 þ.e. 1 klukkustund eftir að veiði lýkur
Þrif fyrir brottför:
Vaska upp óhreint leirtau.
Ísskápur, sturta, vöðlugeymsla, helluborð og ruslaskápur yfirfarin og þrifin.
Grillið.
Aðgerðarborðið og gengið frá áhöldum.
Aðgæta skal öll herbergi áður en húsið er yfirgefið til þess að staðfesta að húsið sé í því ástandi sem viðkomandi veiðimenn gætu hugsað sér að koma að því.
Hægt er að kaupa almenn þrif þ.e.
Þá eru gólfin skúruð og tekið úr uppþvottavél.
Allt annað er á ábyrgð viðkomandi veiðimanna s.s. ísskápur, sturta, vöðlugeymsla, helluborð og ruslaskápur.
Annað
Upplýsingum, spurningum og athugasemdum er hægt að koma til
Grétars veiðivarðar
í síma 863-7343 og Guðna veiðivarðar í síma 868-7897










