logo

Merkileg vertíđ í gangi.

19 september 2011

 
Það má með sanni tala um þessa vertíð sem merkilega fyrir þær sakir hve lítið gengur af laxi á þessu svæði. Vatnsá er tvö ár í að allt verður líkt og áður.
En annars hefur þessi vertíð verið slök en besta hollið var við veiðar um helgina síðustu með 6 laxa og það var nýr fiskur þannig að ljóst er að einhver smá hópur kom inn í fyrradag.
að gefa bestu tveggja daga hollum uppí 15 laxa sem er varla fjórðungur af veiðinni frá því í fyrra. Laxinn hefur verið að færa sig ofar í kerfið og víða má finna lax en hvergi er mikið magn af fiski. Stórlaxar hafa verið að veiðast jafnt og þétt í sumar og hafa nokkrir 80 cm fiskar komið á land, þá hefur veiðst uppí 8 punda birtingar á svæðinu. Af síðustu þremur árum hefur Vatnsá verið besta laxveiðiáin á landinu í tvígang yfir veiði pr.st. en þetta sumar er algjör viðsnúningur þar á.
 
Kerlingadalsá hefur verið einnig mjög róleg og þar hefur veiðst 95 cm hængur ásamt um 10 punda birting og nokkrum 6 – 8 punda, veiðimenn tala um þessa fiska sem bolta í orðsins fyllstu merkingu, þeir eru stuttir og hrikalega feitir. Birtingurinn hefur ekki verið að skila sér í sama magni og undanfarin ár en þó gengur fiskur daglega uppí Heiðarvatn.
 
Heiðarvatn hefur verið að gera það mjög gott í sumar og þar veiðist alltaf fiskur, sveiflurnar geta verið ótrúlega miklar á milli daga en þeir sem sækjast í bleikjuna eru að ná jafnari árangri í sínum veiðum.
 
Skógá er stóra spurningarmerkið í ár. Spurningin þar er hvar er stórlaxinn sem um allt land er í meiramæli en undanfarin ár og víða uppistaða laxveiðarinnar þetta sumarið. Þetta er spurning sem veltur á mér núna, það var vitað að smálaxa vertíðin væri algjört lotterí en þó alltaf von til að ná nokkur hundruð löxum en það hefði átt að vera nokkuð öruggt að fá stórlaxinn upp, en hvað svo? Svarið er að ekki hefur einn einasti stórlax komið í sumar sem er mér óskyljandi staða. Það er alveg ljóst að eitthvað í vatnakerfinu hefur breyst þó svæðið virðist líta betur út með hverjum deginum og örugglega ekki nema