logo

Allt ţremur vikum seinna í ár.

22 ágúst 2011

Fyrstu laxar sumarsins sáust ekki fyrr en um mánaðarmót síðustu í Vatnsá og það voru ekki stórir hópar af laxi sem komu þá. En allt hefur breyst frá þeim
tíma og fiskur kominn um allt. Vatnsá hefur hefur verið bakka full af vatni í sumar og er hálf sérstakt að heyra að fiskur sé tregur við slíkar aðstæður en veiðimenn hafa verið að sjá fisk víða sem ekkert hreyfir við agni. Þessu sumri má meira líka við vertíðina frægu frá 2007 en það ár veiddi Guðmundur Guðjónsson ritstjóri einmitt fyrsta laxinn í kringum 10 ágúst og svo varð allt vitlaust 10 dögum seinna, en nú er bara að sjá hvort allt detti ekki í gang með látum líkt og alltaf í Vatnsá en þetta er nú ásamt Skógá einhverjar allra mestu síðsumarsár á landinu og hefur september verið að gefa uppí 80% af heildarveiði sum árin.
 
Sjóbirtingurinn er seinni þetta árið og venjan er að meiri birtingur sé að ganga en nú. Þegar þetta er allt lagt saman gæti verið niðurstaðan að frábærir tímar séu framundan en það verður tíminn að leiða í ljós.
 
Kerlingadalsá hefur verið mjög lífleg í sumar og að vanda eru birtingarnir stærri en laxarnir en það er ekki óalgengt að veiða þar 4-6 punda birtinga og alltaf veiðast þeir með þessir 10 punda og stærri. Minna hefur verið af birtingi nú en undanfarin ár en þeir eru þó að veiðast ásamt laxi og mun eflaust vaxa úr þessu.
 
Skógá hefur aldrei byrjað jafn seint í þessi 11 ár sem ég hef verið með ána. Það var árið 2002 sem Rafn Hafnfjörð heitinn veiddi fyrsta laxinn 11 ágúst og startaði fyrsta alvöru árinu síðan þá hefur veiðin verið að færast framar á hverju ári en nú veiddist sá fyrsti þann 12 ágúst og biðin var orðin ansi þreytandi. Ekki er mikill lax gengin í ána en því meira er fyrir framan ósinn og sjást á háflóði koma göngu upp sem eitthvað eru að spá í spilin og eru alltaf einn og einn sem lætur vaða upp. Þá er góð vísbending um að slatti af laxi sé fyrir utan þegar sjást þrír selir í einu við ósinn en hér fyrir tveir árum var hægt að ganga að því vísu að fyrir hvern einn sel sem var við ósinn voru 30 – 100 laxar á leiðinni upp en spurning hvernig það virkar í dag..
 
Af ösku í Skógá..
 
Sama dag og fyrsti laxinn veiddist var Skógá mokuð út og hefur hún nú náð að grafa sig niður um hálfan metra í gegnum öskulag, þann 14 ágúst var svo kallað aftur eftir beltavél til að safna vatninu meira saman í rásir og sú aðgerð gekk vel og er áin orðin vel fiskgeng en þetta breytist daglega og því ekkert hægt að segja til um framhaldið. Það jákvæða á svæðinu er að hyljirnir sem áin náði að búa til í vetur hafa aldrei verið flottari og lítil aska er á svæðinu frá hyl 14 og upp að Skógafossi. Þá hefur áin náð að verða nokkuð tær núna í 10 daga og því merki um að innan 2 ára verði svæðið orði veiðiparadís að nýju. Kverna sem er hliðará Skógár er orðin alveg tær og þar eru komnir nokkrir litlir strengir en Kverna er að flytja talsverða ösku fram sem er orðið alveg hreint efni og nær því ekki að lita vatnið.