Vatnsį meš hęstu mešalveiši pr. St. Sumariš 2010
6 janúar 2011

Vatnsá sló tveggja ára gamalt met sitt yfir fjölda veiddra laxa sumarið 2010 með 1150 laxa veiði, gamla metið frá 2008 var uppá 1010 laxa og var því aukningin töluverð. Lax gekk
snemma í ána og var veiði strax frá opnun mjög góð. Silungsveiðin var einnig frábær í Heiðarvatni og komu nokkrir mjög stórir silungar og meðal urriða var yfir 20 punda fiskur sem veiddist á Nobbler í ágúst. Í maí til júlí var bleikjuveiðin einnig góð og voru að veiðast fallegar 2-4 punda bleikjur með. Kerlingadalsá var frekar erfið viðfangs en þó voru kunnugir að tína upp stóra sjóbirtinga og alltaf laxa þegar farið var til veiða. September kom þó vel út í heildina litið þrátt fyrir að fiskur væri mjög snemma á ferð en svo virtist sem lax væri að ganga út allan tímann. Skógá var óveiðandi frameftir sumri en þegar leið á ágúst byrjaði lax að gefa sig. Í september komu svo nokkrir dagar þar sem lítið rigndi og þá strax veiddust laxar. Mikil aska kom svo í ána í lok september sem virtist vera að miklu leyti farin af efra svæði árinnar í desember. Skógá endaði í 130 löxum sem er með því lélegasta frá upphafi skráninga. Fyrir þetta sumar var meðalveiðin yfir 1000 löxum og því var um mikla niðursveiflu að ræða.










