logo

Vatnsá en í metgír.

10 september 2010

Vatnsá komin með yfir 520 laxa og stefnir í aðra bestu lokaútkommu frá upphafi. Mikið er af fiski og nýr
fiskur enn að ganga. Það virðist vera allskyns flugur sem virka og hitch ekki síður. Fiskur virðist vera í öllum hyljum í ánni þó mest sé á efra svæðinu. Talsvert hefur rignt síðustu daga og vatnsstaða með besta móti ásamt því er hlýtt og því ekkert útlit fyrir annað en að veislan haldi þar áfram. Þá hefur orðið vart við alsverðan tveggja ára fisk í ánni og eru menn ávallt að setja í stóra á efra svæðinu.