logo

Kerla heldur vel viđ sína

24 ágúst 2010

Kerlingadalsá hefur verið að gera það gott að undanförnu og voru kunnugir þar á ferð nýverið og veiddu að vanda vel. Annar dagurinn gaf

5 laxa og 2 sjóbirtinga sem voru 3 og 5 punda, síðari dagurinn gaf 4 laxa og 3 sjóbirtinga. Áin er í topp gír, vatnsstaða góð og nokkrir mjög fallegir hyljir eru í ánni núna en líkt og kunnugir vita þá er það fljót að breytast ef eitthvað rignir að ráði. Ekkert virðist vera farið að ganga að ráði af smærri birting en sá tími rennur gjarnan upp þegar líða tekur á sept.