Dagur 3 í hreinsun lokiđ.
19 ágúst 2010
Þriðji rigningardagurinn er afstaðinn og því er formlega hægt að tala um að hreinsunarstarfið sé formlega hafið í Skógá eftir
gosið. Þetta var orðin löng bið eftir rigningum en strax eftir þessar rigningar er farið að sjást meira í jökulinn en áður hefur sést í sumar. Síðustu átta dagar hafa gefið 1 lax og virðist sem laxinn ætli ekki upp ána þetta sumarið. Áin hefur verið mjög lituð undanfarið og ekkert hægt að veiða að ráði. Trúlega þarf að gefa svæðinu tíma fram að mánaðarmótum áður en farið verður í að afskrifa sumarið endanlega. Laxinn hefur ekki um neina staði að velja í ánni og spurning hvar hann muni staðsetja sig þegar hann loks kemur.









