Vatnsá : 40 laxar um helgina..
11 ágúst 2010
Vatnsá yðar af laxi þessa daga og skilaði rigningin um helgina miklum laxi og takan eftir því. Fiskurinn virðist
vera um allt og eru yfir 200 laxar í svörtuloftum þessa stundina. Nokkrir stórir eru að veiðast úr Vatnsá en mest er þetta fiskur frá 4-6 pund. Kerlingadalsá hefur verið of lituð það sem af er sumri og hafa ekki komið margir dagar í lagi þetta sumarið vegna hita og rigninga. En framundan eru þó kaldari nætur og von til að hún verði veiðanleg.







