Skógá : 10 laxa múrinn rofin..
11 ágúst 2010

Skógá er aðeins komin í 10 laxa þetta sumarið en aldrei hefur verið minni veiði í ánni síðastliðin 7 ár. Á sama tíma í fyrra var veiðin
að detta í 150 laxa, en árið 2002 veiddust fyrstu 11 laxarnir þann 11/8. Nú er stækkandi straumur og spennandi verður að sjá hvað setur en trúlega mun ekkert gerast fyrr en að kólna muni til fjalla. Lax sem gengur fyrst að ósasvæðinu er gjarnan tveggja ára lax en slíkur lax hefur ekki sést í ánni síðan um miðjan júlí þegar þeir voru að reyna ganga upp en sneru ávallt við í ósnum. Miklar rigningar voru á svæðinu þann 8/8 og kom þá fyrsta hlaupið í ána en þetta hlaup virtist ganga nokkuð greiðlega niður og settist engin aska að niður með ánni, heldur virðist hún hafa runnið öll til sjávar.









