logo

Tveir í morgun

4 ágúst 2010

Í morgun veiddust 2 laxar í Ármótunum og einn slapp. Þetta var eini hylurinn sem
Í morgun veiddust 2 laxar í Ármótunum og einn slapp. Þetta var eini hylurinn sem reyndur var í morgun. Svo virðist sem laxaganga hafi komið og stoppað í Ármótunum. Það sem hljómar jákvætt við þessar tökur er að laxinn liggur í Skógánni en ekki í hreina vatninu frá Kvernu. Þá sáust 5 laxar við Litlu Ármót og virðist sem laxinn sé nú loks að mæta á svæðið.