Vatnsá slćr öll met
3 ágúst 2010
Lax hefur gengið daglega að undaförnu og er fiskurinn orðinn mjög vel dreifður um
Lax hefur gengið daglega að undaförnu og er fiskurinn orðinn mjög vel dreifður um svæðið. Áin er mun vatnsmeiri en undanfarin sumur og laxinn virðist ekki stoppa eins mikið niðrí Kerlingadalsá líkt og undanfarin sumur. Júlí gaf yfir 40 laxa og var einn 12 punda þar stærstur, þó slapp mun stærri fiskur í Svörtuloftum. Frúarhylur hefur verið að detta einnig í gang en laxinn er farinn að safnast fyrir á pöllunum neðan Frúarhyls og Minks. Vatnsá er ein allra mesta síðsumarsá landsins og því eru ævintýri væntanleg þar framundan.








