logo

Hann slapp

3 ágúst 2010

Þann 31/7 setti hann Svend Richter í og missti lax neðan Ármóta. Þetta var því
Þann 31/7 setti hann Svend Richter í og missti lax neðan Ármóta. Þetta var því annar laxinn sem sleppur þetta sumarið, fyrri slapp þann 18/7. Það sem vakti athygli var að hann tók í fyrir neðan Ármótin og lá í kakóinu en Skógá hefur verið mjög ösku lituð undanfarið. Ósinn virðist vera orðinn mjög vel fiskgengur og rennsli þar orðið rólegt og botninn því minna á hreyfingu, vatnsmagn árinnar sem hefur aldrei verið minna og enginn úrkoma í vændum. Spár um norðlægar áttir gætu orðið upphaf vertíðar þetta sumarið en talsvert brim hefur verið að undanförnu í þessum SA- og SV-áttum sem hafa verið í allt sumar.