logo

Besta opnun Vatnsár frá upphafi !

28 júlí 2010

Vatnsá opnaði með sjö laxa degi og var fiskurinn mest neðst í ánni, einnig komu nokkrir sjóbirtingar frá
Vatnsá opnaði með sjö laxa degi og var fiskurinn mest neðst í ánni, einnig komu nokkrir sjóbirtingar frá 2 – 6 punda. Veiddist mest á litlar flugur og örtúpur. Ekki virðist vera mikið komið uppí frúarhyl en þar sást nýverið stór torfa af birting og mörgum mjög stórum, hugsanlega var sá fiskur á leið niður en ekki upp ánna en því til staðfestingar var að einn fiskur veiddist úr göngunni og var hann mjög magur.